Innihaldslýsingar
Pink Mix
Inniheldur þrjátíu stykki af grænu tei. Pakkinn inniheldur 3 mismunandi bragðtegundir. Drykkurinn er fullkomin blanda af andoxunarefnum, B-vítamíni, glútamíni, arginíni, karnitíni og CLA.
Arginín er amínósýra sem er undir vissum aðstæðum nauðsynleg fyrir líkamann, sýran stuðlar að framleiðslu líkamans á vaxtarhormóni sem ýtir undir vöðvavöxt og hraðari efnaskipti. Arginín getur einnig haft áhrif á aukið blóðflæði og þannig virkað sem vörn gegn vöðvabólgu.Talið er að arginín lækki blóðþrýstingin með jákvæðum áhrifum á æðakerfið.
Glútamín er amínósýra sem aðstoðar líkamann við vöðvauppbyggingu, getur styrkt ónæmiskerfi, bætt styrk og þol og fyrirbyggt vöðvaniðurbrot. Glútamín getur einnig haft góð áhrif á einbeitingu.
Karnitín og CLA brýtur niður fitu, breytir henni í orku og dregur úr vöðvaniðurbroti.
Teið inniheldur 90 mg af andoxunarefninu EGCG sem hefur margvísleg jákvæð áhrif á heilsu, ECGC er einungis að finna í grænu tei en það er u.þ.b. 20 sinnum meira magn af því en finna má í sambærilegum tegundum. Teið inniheldur ekki hvítan sykur, aspartame né rotvarnarefni.
The Beauty Tea
Inniheldur þrjátíu stykki af The Beauty Tea sem er svalandi drykkur með mildu berjabragði, fyrir bæði kynin. Teinu skal blanda í 400-500 ml af ísköldu vatni og hrista. Drykkurinn er fullkomin blanda af grænu tei, ávöxtum, fjölsykrusýrur (hyaluronic sýru), kollageni og fulvic sýru. Drykkurinn stuðlar að fegurri húð og líkama og skal drekka einn skammt á dag.
Fjölsykrusýra (Hyaluronic sýra): sýran bindur vatn í húðinni, lyftir henni og mýkir, ásamt því sem hún gefur henni nýjan þéttleika. Efnið er gjarnan notað sem fyllingarefni í húð, svipað og kollagen. Sýran hefur verið gefin þeim sem eru með gigt og þá sérstaklega slitgigt þar sem hún á að geta dregið úr verkjum og bólgum.
Kollagen: Er prótín sem á mestan þátt í að viðhalda húðinni unglegri og frískri ásamt því að koma í veg fyrir hrukkur.
Fulvic sýra: Er gjarnan notuð við húðhreinsun, hún losar húðina við eiturefni og gerir hana móttækilegri fyrir upptöku næringarefna. Sýran hefur reynst vel í baráttunni gegn unglingabólum.
Teið inniheldur 90 mg af andoxunarefninu EGCG sem einungis má finna í grænu tei en það er u.þ.b. 20 sinnum meira magn en finna má í sambærilegum tegundum.
Teið inniheldur hvorki hvítan sykur, aspartame né rotvarnarefni.