Um okkur

Við hjá GreenTeaHp bjóðum upp á bragðgóða, orkugefandi og vítamínbætta drykki sem auðvelt er að grípa með sér - hvort sem þú ert á leið í vinnu, ræktina eða bara smá extra orku yfir daginn. 

Drykkirnir eru þróaði og framleiddir af bandaríska fyrirtækinu GreenTeaHP og við erum stoltir einkaaðilar þeirra á Íslandi og erum ánægðar að geta boðið ykkur upp á sömu gæði og erlendis - á sanngjörnu verði. 

Í vefversluninni okkar finnur þú fjölbreytt úrval bragðtegunda með mismunandi virkni, svo þú ættir að geta fundið drykk sem hentar þér og þínum degi. 

Afhverju GreenTeaHP?

Við systurnar, Barbara og Birgitta, flytjum drykkina inn til Íslands. 

Sagan okkar með GreenTeaHP byrjaði árið 2010 eftir að önnur okkar veiktist alvarlega af heilahimnubólgu. Eftir veikindin fylgdu eftirköst eins og orkuleysi og tíðir höfuðverkir- og ég var stöðugt að leita að eitthverju sem gæti hjálpað. 

Það var síðan ferðalagi í Seattle þar sem við rákumst ákynningarbás þar sem verið var að kynna GreenTeaHp. Við smökkuðum- og urðum strax hrifnar af bragðinu og ákváðum að taka nokkra kassa heim til Íslands. 

Eftir að við fórum að drekka GreenTeaHP reglulega fundum við fyrir meiri orku, og höfuðverkurinn hvarf smám saman. En það sem kom okkur líka á óvart var að sætindalöngunin minnkaði verulega. 

Fljótlega fóru vinir og fjölskylda að smakka drykkina- og svo þeirra vinir og áður en við vissum af voru sífellt fleiri að spyrja hvar hægt væri að fá þá. Þetta varð til þess að við settum okkur í samband við framleiðandann og í framhaldinu gerðum við samning við GreenTeaHP um að flytja drykkina inn til Íslands. 

Viðtökurnar hafa verið fram úr öllum okkar væntingum og við erum ótrúlega þakkláta að geta loksins boðið ykkur upp á þessa frábæru drykki í vefversluninni okkar.